DANS- OG LISTASMIÐJA

SÉRSNIÐNIR HÓPTÍMAR



Uppákomur og einkatímar

Undanfarin ár hafa sérhönnuð námskeið og einkatímar fyrir hópa orðið stór hluti af starfsemi Kramhússins.

Ýmsir hópar hafa nýtt sér námskeiðin hvort sem tilefnið er sérstakt eða bara til að fá tilbreytingu í amstri dagsins. Starfsmannahópar, saumaklúbbar, félagar í óvissuferð, gæsir og steggir hafa átt margar góðar stundir í Kramhúsinu og leggur starfsfólkið sig fram við að sníða stakk eftir vexti.

Úrval kennara hússins geta spunnið fram ótrúleg ævintýri og stund í Kramhúsinu verður ógleymanleg. Öll þau námskeið sem í boði eru í Kramhúsinu er hægt að fá sem einkatíma fyrir hóp hvort sem er í eitt skipti eða lengri tíma.

Nýtt fyrir gæsir dansinn við "all you single ladies"
Nýtt fyrir steggi afró Fífa-fótboltadansinn frá HM.

Ef þú ert með hugmynd - erum við til !!!

Frekari upplýsingar og ráðleggingar má fá hjá Bryndísi, og netfangið hennar er: bryndis@kramhusid.is

Vafraðu um