DANS- OG LISTASMIÐJA

LISTASMIÐJA BARNA OG UNGLINGA

Kramhúsið býður upp á ýmis námskeið fyrir börn frá 3ja ára aldri !!
Athugið að frístundakort Reykjavíkurborgar gildir í Kramhúsinu ! (uppl á www.itr.is)
 

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 

Tónlist og skapandi hreyfing
3 ára, 4 ára, 5 ára og 6 ára
"Það er ímyndunaraflið sem þarf að vekja og þjálfa". Carl Orff.

Í mörgum menningarsamfélögum eru tónlist og dans samofin og óaðskiljanleg heild.  Við þurfum öll tækifæri til að dansa,syngja,hlusta, vera skapandi og tjá okkur.  Sérstök áhersla er lögð á heildarsamvinnu.

 
Dans og hreyfing 3ja ára
Kennari:  Eva Rós Guðmundsdóttir
3ja ára kl. 10:00.  Með foreldri/um. 12 börn í hóp hámark. 6 vikna námskeið 45mín í senn. Námskeiðið hefst 14.janúar. 
Eva Rós lauk dansnámi sínu í Bretlandi og hefur stundað og kennt dans hér á landi um árabil. Hún hefur kennt eldri djazzdans og samtímadans og hefur nú snúið sér að enn yngri börnum.
 

 
Tónlist og hreyfing 4ja og 5 ára.
Kennari: Ylfa Ösp Áskelsdóttir
tskrifaðist frá Menntavísindasviði Háskólans sem grunnskólakennari með tónlist, leiklist og dans sem kjörsvið. Hún nam leiklist við Film/Teaterskolen Holberg í Kaupmannahöfn 2004-7. Hún unnið sem leiðbeinandi og deildarstjóri við Leikskólann Hagaborg. Einnig er hún hluti af Sviðslistahópnum 16 elskendur. Lokaverkefni hennar í HÍ var tilnefnt til verðlaun úr minningarsjóði Ásgeirs S. Björnssonar.

4ja og 5 ára kl. 10:00. 12 vikur.  12 börn í hóp i 50 mín í senn. 
 

Tónlistarleikhús 5 og 6 ára.
Kennarar: Ylfa Ösp Áskelsdóttir og Sara Friðgeirsdóttir

 
OG

Tónlistarleikhús 7 til 9 ára.
Kennarar: Ylfa Ösp Áskelsdóttir og Sara Friðgeirsdóttir

5-6ára kl. 10:55-11;45. 12 vikur og 7-9ára kl 11:50-12:40 12 vikur.
50 mín  í senn.  Á þessu námskeiði fá börnin útrás fyrir sköpunargleði sína.  Kennarar og börnin vinna saman að þema fyrir sýningu.  Börnin koma með hugmyndir sem eru svo unnar í samvinnu við kennara og úr verður hin mesta skemmtun.  Börning búa til texta til að tengja senur sem þau hafa búið til sjálf. 
Sara er nýr kennari í Kramhúsinu.  Hún útskrifaðist með BA Honours í Contemporary Theatre Practice frá The Royal Scottish Academy of Music and Drama 2005-2009. Hluti af náminu var að kenna börnum leiklist, vinna að samfélagsleikhússiningu, dansspunasýningu ofl. Hún hefur unnið sem leiðbeinandi við leikskólanan Hagaborg og Grandaborg. Við bjóðum Söru velkomna í Kramhúsið!

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Break Dans

5 ára og eldri
Krakkar á öllum aldri geta lært Breakdans. Hópnum er skipt eftir aldri og reynslu en Breakdans er bæði fyrir stráka og stelpur. Natasha hefur kennt Breakdans í Kramhúsinu í mörg ár, einnig sækir hún námskeið árlega til New York.  Nú síðast var hún á námskeiði í sumar hjá Elite force crew.  Má fá nánari upplýsingar um þann kvartett á síðu þeirra www.eliteforcecrew.com
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 

Hip Hop 
13+ á fimmtudögum

Hip Hop er upprunnið í New York og er svokallaður "street dans" og á uppruna sinn í hiphopmenningunni eins og Break og Housedance. 
Kennari er Natasha sem fer árlega til NY að kynna sér nýjustu dansstílana.

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .


Fyrstu sporin 4ja og 5ára.
Kennari: Eva Rós Guðmundsdóttir 
Kennsla í hreyfingum í takt við tónlist til að auka hreyfiþroska barna. Dansað í gegnum leiki og um leið er hlustun á takt og rythma og samhæfing þjálfuð 
Tímarnir eru á laugardögum kl. 10.45-11.35  fyrir 4-5 ára
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

NÝTT:   Skapandi dans (creative dance)
Kennari: Brogan Davison
Laugardögum kl 13:00 fyrir 7-9 ára og á fimmtudögum kl 16 fyrir 10+

 
Markmið námskeiðsins er að hluta til að börnin læri að "búa til dans" (make dance), í  gegnum leik, spuna og jákvætt umhverfi.  Námskeiðið reynir líkamlega á krakkana og hvetur þau til að hugsa víðar um dansinn, hreyfingarnar og möguleikana í kringum dansinn.  Brogan kennir eldri nemendum samtímadans í Kramhúsinu og gefur einstaklega mikið af sér í kennslu sinni sem einkennist af fagmennsku og gæðum.  Brogan er útskrifuð með BA honours frá hinum virta Laban dansskóla í London og hefur þegar getið sér góðs orðstýrs á meðal nemenda og samstarfsfólks.




. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
 

Street / Locking/ House.  Verður ekki haustið 2011
Kennari er Ragna Þyrí.
Frábær dansnámskeið, góð hreyfing og æðisleg tónlist.

Athugið - Ragna Þyrí er líka með House dance námskeið kl. 18.30-19:30 á föstudögum.

. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .




. . . . . .
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 

   








   

Kramhúsið er aðili að Frístundakortinu!

Allar nánari upplýsingar um Frístundakortið má finna á www.itr.is



. . . . . .
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .

Sumarskóli Kramhússins var ekki starfræktur í sumar 2011 en vonandi að við komum inn sterk sumarið 2012.  Vegna fjölda áskorana munum við reyna að halda þessum námskeiðum gangandi næstu sumur.

Vafraðu um