|
DANS- OG LISTASMIÐJA |
|
DANSINN Í KRAMHÚSINU
Zumba fitness með Evu Suto.
Athugið: Ivonne Martinez, hinn vinsæli afrókennari, sér um afró kennsluna í janúar. Með henni er trommarinn Ryan Greenidge sem kemur til okkar frá New York. Missið ekki af þessu. (mögulegt er að skrá sig sérstaklega í hennar tíma, hafið samband við okkur með pósti eða í síma)
Afró byrjendur og byrjendur +: mánudaga og miðvikudaga 19:45. Opinn tími lau kl 14:00 Kraftmiklir danstímar við heitan trommuslátt. Mikil hreyfing og rythmi. Afró er ekki bara skemmtilegt, heldur eykur það líka orku, styrk og þol. Tímar fyrir fólk af öllum stærðum og gerðum, alla aldurshópa og bæði kynin. Byrjenda, miðstigs og- og framhaldsnámskeið. Kennari: Sandra Erlingsdóttir. Aðaltrommari er Alzeny ásamt Cheick og fleirum. Á hverju ári hefur Afró-hópurinn, í heild eða að hluta, staðið fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum og tekið þátt í sýningum víðs vegar um landið.
Sjá einnig á www.tango.is ! Tangófélagið, sem hefur verið virkt síðan 2000, stendur fyrir reglulegum danskvöldum á föstudögum í Kramhúsinu og komu erlendra gestakennara í samvinnu við Kramhúsið. Nánari upplýsingar um Tangó, kennarana og námskeiðin má finna á www.tango.is . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Magadans Magadans fyrir byrjendur. Magadans er frjáls dans þar sem lögð er áhersla á mjaðmahreyfingar og mjúkar handahreyfingar túlka tilfinningar og sál dansins. Allt sem tengist kvenleika er hægt að túlka með magadansi. Magadans þjálfar innri kviðvöðvana sem við notum eiginlega aldrei í daglegu líf og hann heldur þér í góðu líkamlegu formi.
Allir geta stundað magadans, óháð aldri eða líkamlegu atgervi! Útbúnaður: þæginleg föt, leggings eða sítt pils, slæða utan um mjaðmir. Stuttan topp (ekki nauðsynlegt. Byrjendanámskeið tvisvar í viku með Nadíu. Miðstig/byrj+ með Evu Suto tvisvar í viku og framhaldsnámskeið með Nadíu tvisvar í viku. Sjá stundaskrá. Dulúð og þokki - fyrir allar sem vilja styrkja konuna í sjálfri sér. Frábært gæsagigg ..!!! . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Bollywood dans.
Það er mikil gleði í Bollywood dönsunum og það er Margrét Erla Maack sem kennir byrjendum og framhaldi. Hún hefur kennt magadans og Bollywood í Kramhúsinu við geysilega góðan orðstýr og greinilegt að eftirspurn er eftir gleðinni ,tónlistinni og hreyfingunni í Bollywood. Bollywood tímarnir fyrir fullorðna eru á miðvikudögum kl 21:00 fyrir vana og á mánudögum kl 21:00 fyrir byrjendur. Möguleiki á sértíma fyrir vinkonurnar að koma saman og skemmta sér! . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
Samtímadans (contemporary dans / nútímadans) Framhald: Krefjandi tímar fyrir þá sem hafa góðan grunn. Kennt tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 21:oo. Aðalkennari er Brian Gerke. Fyrir byrjendur með einhvern grunn: Kennt tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17.15. Kennari: Brogan. Brogan Davison er danslistamaður frá Englandi. Hún lærði í Laban þar sem hún vann með þekktum danshöfundum. Hún útskrifaðist 2010 með BA gráðu og hefur síðan þá verið í verkefnum í Englandi, Noregi og á Íslandi. Hún er meðlimur í Raven og The Who's Johnny? Collective. Við erum lukkuleg með að hafa Brogan innanborðs Brogan verður líka að kenna yngri nemendum - skapandi dans (creative dance): .............................................................................................................. Breakdans og hiphop Krakkar á öllum aldri geta lært breakdans. Hópnum er skipt eftir aldri og reynslu en Breakdans er bæði fyrir stráka og stelpur. Tímarnir eru á fimmtudögum - takmörkuð pláss!
Krump
Blandaður aldur. Hip Hop er upprunnið í New York og Krump er nýjasti stíllinn frá South Central LA. Áhrif frá afrískum dansi og öðrum Hip Hop stílbrigðum stundum kallað "West Coast B-boying". Krump er aðferð til að losa sig við reiði og áhyggjur daglega lífsins með agressívum hreyfingum. Ekki boðið upp á Krump í haust, eða eins og er. Hafið samband út af sérhópum. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
*******************************************************************
Street / Jazz / Locking Ragna Þyri, sprenglærður danskennari frá Svíþjóð, bætist í hóp úrvalskennara og ætlar að kenna krökkum og unglingum street dansa sem eru hiphop og funk stílar t.d. locking sem er einn af vinsælli funk stílum núna. Frábær tónlist, góð hreyfing og nýjustu dansarnir.
. . . .. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Salsa fyrir konurVinsælustu dansarnir frá Karabíska hafinu í dag. Grunnspor og flóknari spor fyrir konur. Tímarnir eru á fimmtudögum fyrir framhald og þriðjudögum fyrir byrjendur. Frábært tækifæri til að kynnast betur suður-amerískri og menningu og grípa taktinn! Kennari er hinn mikli sjarmör og dansari með meiru: Hernan. Verður ekki á dagskrá hjá okkur veturinn 2011.
Upphaflega verður kenndur hátíðardansinn Sevillanas frá Andalúsíu, sem er ferskur og fallegur dans. Síðar verður farið í hrynjandi og tækni Flamenco-dansins. Tilgangurinn er að nemendur kynnist og upplifi framandi menningu dansandi. Einföld leið til að upplifa með líkama og sál innblástur og ástríðu Spánar. Kennari er Minerva Iglesias frá Malaga á Spáni.
.. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Djazz sveifla frá 1930
. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
|
Vafraðu um |