|
DANS- OG LISTASMIÐJA |
|
LEIKFIMI OG YOGA Morgunstyrkur Þessir tímar eru styrkjandi og mótandi. Byrjað er á að hita upp, síðan eru styrktaræfingar á dínu og að lokum góðar teygjur. Tíminn er 45.mín á þriðjudögum og fimmtudögum Morgunteygjur Samanstendur af mjúkum og í senn kröftugum æfingum. Lögð er áhersla á að vekja líkamann varlega, losa um gamla spennu, byggja upp styrk, sveigjanleika og skapandi getu líkamans. Kröftugar öndunaræfingar og flæði í hreyfingum. Góðar æfingar fyrir fólk sem vill lifandi og opinn líkama. Mánudagar og miðvikudagar kl 08:30-09:30.
Kennari Soffía Kr. Jóhannsdóttir Leikfimi í sambatakti
Hin sívinsæla leikfimi Kramhússins er hressileg blanda af leikfimi, dansi og orkugefandi æfingum sem styrkja og liðka líkama og sál. Kennarar leggja áherslu á rétta líkamsbeitingu og öndun við æfingar. Gott fyrir bakið! Þessi suðræna blanda af salsa, samba og afró, ásamt styrkjandi æfingum og teygjuæfingum, er eitt besta ráðið við bakveiki og vöðvabólgu. Leikfimi sem eykur orku og vellíðan. Kennarar eru Hafdís Árnadóttir sem hefur þróað þá leikfimi sem kennd er í Kramhúsinu ásamt Lellu , Andreeu og Sóleyju Jóhannsdóttur. Þá verður Sóley Jóhannsdóttir með morguntíma fyrir karlmennina. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Kripaluyoga í hádeginu og síðdegis. Vaxandi vinsældir Kripaluyoga Kramhússins bera vitni um árangursríka tíma hjá kennurum sem hafa sérhæft sig í yoga-fræðum og hafa mikla reynslu af kennslu og ráðgjöf. Kripaluyoga liðkar líkamann, gefur orku og stuðlar að jafnvægi hugans. Hugleiðsla, teygju- og öndunaræfingar. Morguntímar, hádegistímar og síðdegistímar. Það eru Áslaug Höskuldsdóttir og Ingibjörg Guðmundsdóttir sem eru með hádegis- og síðdegistímana. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Vinyasa yoga Vinyasa (hringrás, alda, tenging) yoga samfelld þróun milli öndunar og hreyfingar, þar sem iðkandinn lærir að hreyfa og nota líkamann með stjórn öndunar. Í Vinyasa yoga er flætt í stöðurnar hverja á eftir annarri, sem gerir það að verkum að mikill innri hiti næst í líkamann. Vinyasa yoga er fyrir alla byrjendur sem lengra komna. Að iðka Vinyasa er ávísun á andlegrar sem líkamlegrar vellíðan. Kennari er Billi. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Thai Chi Gengur út á jafnvægi líkama og sálar, stilla saman Jyn og Jang. Unnir er mikið með orkuflæði, jafnvægi. Þetta er mjög góð styrking fyirr stoðkerfið. Byggir á hægum og mjúkum hreyfingum og lögð er mikil áhersla á rétta líkamsbeitingu í mjúku flæði. Thai Chi er aldagömul kínversk líkamsrækt sem þróaðist frá bardagalist yfir í huglæga líkamsrækt. Því miður er ekki boðið upp á Thai Chi vetur 2010. ................................................................ Leikfimis- og yoga kort Yoga og leikfimiskortið kostar 29.800 fyrir alla önnina, 13 vikur. Verð fer lækkandi þegar líður á. Athugið að hægt er að byrja hvenær sem er á tímabilinu. |
Vafraðu um |